Fara í efni

Stafræn markaðsmiðlun - Viðburðir og ferðaþjónusta á Vestfjörðum

Fréttir

Markaðsstofa Vestfjarða býður upp á námskeið í stafrænni markaðsmiðlun fyrir viðburðahaldara og ferðaþjónustuaðila á Vestfjörðum.

Námskeiðið er í fjórum hlutum, þar sem fyrstu tvær kennslustundirnar fjalla um markaðsstrategíu (kennt á ensku) og seinni tvær um stafrænu markaðssetningartól Meta og Google.

Námskeiðið er kennt í fjarnámi í gegnum netið og eru allir tímarnir 1.5 klukkustund, frá 17:00-18:30.

Dagsetningar:

Þriðjudagur 25. apríl - Marketing Strategy: The Secret Ingredient That Separates the Good from the Great

Þriðjudagur 2. maí - From Panic to Planning: How a Strong Marketing Plan Can Save the Day

Þriðjudagur 9. maí - Stafræn tól: Meta

Fimmtudagur 11. maí - Stafræn tól: Google search

Kennari í fyrri hluta er Juraj Hubinák, markaðssérfræðingur og framkvæmdastjóri hjá Hnappinum og kennarar í seinni hluta eru Andreas Aðalsteinsson, Head of Digital hjá SAHARA og Jón Gísli Ström, Digital Marketing Manager hjá SAHARA.

Verð:

Fyrir aðila að markaðsstofu Vestfjarða: Ókeypis.

Fyrir viðburðahaldara á Vestfjörðum: Ókeypis.

Fyrir aðra: 9.900.

 

Skráningu lýkur mánudaginn 24. apríl.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Steinunni á netfangið steinunn@vestfirdir.is.

Skráning á námskeið