Fara í efni

Orkuþing Vestfjarða

Fréttir

ORKUÞING VESTFJARÐA

3. JÚNÍ 2026 KL. 11:30 – 15:00

Orkuþing Vestfjarða verður haldið miðvikudaginn 3. júní á Ísafirði þar sem helstu hagaðilar í orkumálum svæðisins koma saman til að ræða stöðu, framtíðarsýn og tækifæri í orkuuppbyggingu á Vestfjörðum.

Á þinginu verður farið yfir lykilverkefni í orkumálum á svæðinu, framvindu þeirra, tímalínur og þær áskoranir sem standa frammi fyrir samfélögum og atvinnulífi Vestfjarða á komandi árum. Jafnframt verður fjallað um þau tækifæri sem felast í aukinni orkuöflun, bættu orkuöryggi og orkuskiptum í landshlutanum.

Skráning

Dagskrá

11:30 

Hádegisverður
12:15    Fundarsetning - Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
12:30    Blámi - inngangur
12:45    Orkubú Vestfjarða - vatnsafl
13:00    Landsnet - flutningskerfið
13:15    EM - Orka - vindorka
13:30    Kaffihlé
13:45    Arctic Hydro - Austurgilsvirkjun
14:00    Vesturverk - Hvalárvirkjun
14:15    Orkubu Vestfjarða - jarðhiti
14:30    Pallborðsumræður

Að loknum pallborðsumræðum verður boðið upp á kaffi og meðlæti.

Staðsetning

Edinborgarhúsið