Fara í efni

Orkuþing Vestfjarða

Fréttir

ORKUÞING VESTFJARÐA

3. JÚNÍ 2026 KL. 11:00 – 14:15

Orkuþing Vestfjarða verður haldið miðvikudaginn 3. júní á Ísafirði þar sem helstu hagaðilar í orkumálum svæðisins koma saman til að ræða stöðu, framtíðarsýn og tækifæri í orkuuppbyggingu á Vestfjörðum.

Á þinginu verður farið yfir lykilverkefni í orkumálum á svæðinu, framvindu þeirra, tímalínur og þær áskoranir sem standa frammi fyrir samfélögum og atvinnulífi Vestfjarða á komandi árum. Jafnframt verður fjallað um þau tækifæri sem felast í aukinni orkuöflun, bættu orkuöryggi og orkuskiptum í landshlutanum.

Dagskrá

11:00 Fundarsetning - Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
11:15 Blámi - inngangur
11:30 Orkubú Vestfjarða - vatnsafl
11:45 Landsnet - flutningskerfið
12:00 Hlé - hádegisverður
12:45 EM-Orka - vindorka
13:00 Arctic Hydro - Austurgilsvirkjun
13:15 Vesturverk - Hvalárvirkjun
13:30 Orkubú Vestfjarða - jarðhiti
13:45 Pallborðsumræður

Að loknum pallborðsumræðum verður boðið upp á kaffi og meðlæti.

Staðsetning

Edinborgarhúsið

Skoða á viðburðardagatali