Fara í efni

Opið fyrir skráningar á Gullkistuna Vestfirði

Skráningar eru hafnar á Gullkistuna Vestfirði 2025 og hafa þær farið vel af stað. Fyrirtæki víðs vegar að af Vestfjörðum hafa þegar skráð sig til þátttöku – og hvetjum við fleiri til að tryggja sér pláss sem fyrst og vera með á þessari glæsilegu sýningu. Gullkistan Vestfirðir 2025 fer fram laugardaginn 6. september í íþróttahúsinu Torfnesi á Ísafirði. Þá verður rýminu umbreytt í lifandi og litríka sýningu þar sem hugvit og kraftur Vestfirðinga fær að njóta sín – í atvinnulífi, menningu og nýsköpun.

Undir slagorðinu „Þar sem hugmyndir blómstra, tengsl myndast og framtíðin fæðist“ leggur sýningin áherslu á Vestfirði sem framsækið og fjölbreytt svæði með sterkum rótum og bjartri framtíðarsýn.

Gullkistan er kjörinn vettvangur til að:

  • kynna vörur og þjónustu 

  • mynda og styrkja tengsl

  • sýna hvað Vestfirðir hafa upp á að bjóða í allri sinni dýrð

Við viljum sjá fyrirtæki, stofnanir, frumkvöðla, listafólk, framleiðendur og nýsköpunarverkefni alls staðar að af svæðinu koma og vera með.

Skráningarfrestur er til 30. júní 2025.
Nánari upplýsingar, verðskrá og umsóknareyðublað má finna hér.
Frekari upplýsingar veita gudrunanna@vestfirdir.is og solvi@vestfirdir.is