Fara í efni

Mótvindur // Fundur um ferðaþjónustu í Norðvesturkjördæmi

Fréttir

Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða boða til mikilvægs fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi.

Fundurinn fer fram fimmtudaginn 22. október í Hjálmakletti, Menningarhúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi, og stendur á milli kl. 17.00 - 19.00. Fundurinn verður jafnframt sendur út í beinni útsendingu á vef SAF.

Fundurinn fer fram á mikilvægum tímapunkti. Á Alþingi liggja nú fyrir stór mál sem snerta ferðaþjónustuna með beinum hætti og geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði greinarinnar og atvinnulíf í Norðvesturkjördæmi. Þar má meðal annars nefna skattahækkanir á baðlón, krónutöluhækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi ásamt frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa.

Þetta eru ekki aðeins málefni ferðaþjónustunnar. Þau snúa að atvinnu, fjárfestingu, samkeppnishæfni og byggðaþróun í Norðvesturkjördæmi og því er mikilvægt að þau séu rædd af fulltrúum kjördæmisins við þá sem starfa í greininni og þekkja stöðuna af eigin raun.

Á fundinum mun Deloitte kynna niðurstöður á greiningu sem fyrirtækið hefur unnið fyrir SAF um áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þá verða flutt erindi frá SAF og fulltrúum sveitarstjórnarmála og ferðaþjónustu í kjördæminu.

Erindi flytja:

  • Blómleg ferðaþjónusta skilar stærri sneið til samfélagsins

Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar

  • Fyrirhugaðar skatta- og gjaldabreytingar í samhengi ferðaþjónustu

Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte

  • Að halda sjó - skemmtiferðaskip skapa verðmæti

Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða

  • Borgar sig enn að fjárfesta í ferðaþjónustu?

Ólafur Steinarsson, eigandi Krauma

Fundarstjóri: Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Vesturlands

Seinni hluti fundarins verður vettvangur beinna samtala við þingmenn um þau mál sem nú eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni.

Þátttakendur í pallborðsumræðum:

  • Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingar
  • Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins
  • Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar
  • Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks
  • Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins
  • Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins

Umræðustjóri: Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi SAF

Fundurinn er hluti af fundarröðinni Mótvindur sem SAF standa að ásamt markaðsstofum víða um land. Nánari upplýsingar um fundarröðina má FINNA HÉR.

Við hvetjum leika og lærða að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðum, enda mikilvægt að taka þátt í samtalinu um stöðu ferðaþjónustunnar!

Skoða á viðburðardagatali