Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða boða til mikilvægs fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi.
Fundurinn fer fram fimmtudaginn 22. október í Hjálmakletti, Menningarhúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi, og stendur á milli kl. 17.00 - 19.00. Fundurinn verður jafnframt sendur út í beinni útsendingu á vef SAF.
- Hlekkur: Skráning á fundinn!
Fundurinn fer fram á mikilvægum tímapunkti. Á Alþingi liggja nú fyrir stór mál sem snerta ferðaþjónustuna með beinum hætti og geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði greinarinnar og atvinnulíf í Norðvesturkjördæmi. Þar má meðal annars nefna skattahækkanir á baðlón, krónutöluhækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi ásamt frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa.
Þetta eru ekki aðeins málefni ferðaþjónustunnar. Þau snúa að atvinnu, fjárfestingu, samkeppnishæfni og byggðaþróun í Norðvesturkjördæmi og því er mikilvægt að þau séu rædd af fulltrúum kjördæmisins við þá sem starfa í greininni og þekkja stöðuna af eigin raun.
Á fundinum mun Deloitte kynna niðurstöður á greiningu sem fyrirtækið hefur unnið fyrir SAF um áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þá verða flutt erindi frá SAF og fulltrúum sveitarstjórnarmála og ferðaþjónustu í kjördæminu.
Erindi flytja:
- Blómleg ferðaþjónusta skilar stærri sneið til samfélagsins
Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
- Fyrirhugaðar skatta- og gjaldabreytingar í samhengi ferðaþjónustu
Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte
- Að halda sjó - skemmtiferðaskip skapa verðmæti
Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða
- Borgar sig enn að fjárfesta í ferðaþjónustu?
Ólafur Steinarsson, eigandi Krauma
Fundarstjóri: Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Vesturlands
Seinni hluti fundarins verður vettvangur beinna samtala við þingmenn um þau mál sem nú eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni.
Þátttakendur í pallborðsumræðum:
- Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingar
- Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins
- Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar
- Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks
- Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins
- Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins
Umræðustjóri: Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi SAF
- Hlekkur: Skráning á fundinn!
Fundurinn er hluti af fundarröðinni Mótvindur sem SAF standa að ásamt markaðsstofum víða um land. Nánari upplýsingar um fundarröðina má FINNA HÉR.
Við hvetjum leika og lærða að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðum, enda mikilvægt að taka þátt í samtalinu um stöðu ferðaþjónustunnar!