Fara í efni

Háskólastyrkir - Hafsjór af hugmyndum

Vestfjarðastofa vill minna á styrki sjávarútvegsklasa Vestfjarða til háskólanema á framhaldsstigi  eru  í boði aftur í ár.  Frestur til að sækja um er til 1. júní  þog er þetta frábært tækifæri fyrir háskólanema . Verkefnið Hafsjór af hugmyndum fór fyrst af stað árið 2020.

Markmiðið með “Hafsjó af hugmyndum” er að styrkja lokaverkefni sem skapa aukin verðmæti úr sjávarauðlindinni samhliða eflingu atvinnulífs á Vestfjörðum. 

Nemendur á framhaldsstigi háskóla í öllum háskólum á Íslandi geta sótt um styrk. Auk styrksins munu fyrirtækin í sjávarútvegsklasa Vestfjarða veita upplýsingar, miðla af reynslu og útvega hráefni, upplýsingar og aðstöðu eins og þörf er á hverju sinni. Það mun gefa nemendum góða innsýn inn í spennandi  ný verkefni í vestfirskum sjávarútvegi. 

Úr umsóknum verða valin 5-8 lokaverkefni og hægt er að sækja um styrk á bilinu 250.000-750.000 kr. eftir verkefnum.  Skilafrestur er 1. júní 2021.  

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru aðgengileg á slóðinni: Hafsjór af hugmyndum | Vestfjarðastofa (vestfirdir.is)

Allar nánri upplýsingar veitir Guðrún Anna Finnbogadóttir í netfangi: gudrunanna@vestfirdir.is

Hvetjum háskólanema á framhaldsstigi til að sækja um og nýta tækifærið til að fara á fullt í frumkvöðlastarf á Vestfjörðum