02. september 2026
Fréttir
Gullkistan Vestfirðir 2025
Þá er komið að síðasta heimboði fyrirtækja á Vestfjörðum á Hólmavík 4. september 2026 frá kl 14:00-17:00. Fínt fyrir Vestfirðinga að bregða sér til Hólmavíkur eða stoppa í leiðinni suður eða norður á föstudaginn og upplifa fjölbreitt atvinnulíf á Hólmavík. Strandamenn eru höfðingjar heim að sækja og það er fjölbreytt flóra fyrirtækja sem bjóða þér að koma og skoða.
Samkvæmt veðurspánni verður boðið upp á sólarglennu síðdegis á föstudaginn svo það er tilvalið að rölta um bæjinn og njóta síðustu sumardagana. Sjáumst á Hólmavík.