Vestfjarðastofa og Fjórðungssamband Vestfirðinga hafa gefið út árlega greinargerð um framkvæmd Sóknaráætlunar Vestfjarða, en árið 2025 var fyrsta starfsár nýs fimm ára samnings við ríkið sem undirritaður var í lok janúar 2025. Heildarframlög ríkis og sveitarfélaga til áætlunarinnar nema um 960 milljónum króna á samningstímanum.
Í greinargerðinni kemur fram að öll átta áhersluverkefni ársins hafi komist á gott skrið. Þar má meðal annars nefna Svæðisskipulag Vestfjarða 2025–2050, sem sett var fram til kynningar á árinu og stefnt er á að ljúka vorið 2026, og sýninguna Gullkistuna Vestfirði á Torfnesi í september þar sem á níunda tug fyrirtækja og stofnana kynntu starfsemi sína. Þá var Farsældarráð Vestfjarða stofnað á Farsældarþingi í nóvember, Ungmennaráð Vestfjarða hélt ungmennaþing í Breiðuvík með 56 þátttakendum, og undirbúningur fyrir almyrkvann 12. ágúst 2026 hófst af krafti.
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða úthlutaði síðan 60 milljónum króna til 60 fjölbreyttra verkefna á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar á árinu 2025.
Á árinu 2026 verður unnið að því að samþætta Sóknaráætlunina enn frekar við Svæðisskipulag Vestfjarða þannig að stefnuskjölin tvö myndi samstæða heild til stuðnings byggðaþróun á svæðinu.
Greinargerðin í heild má HÉR eða undir síðu verkefnisins https://www.vestfirdir.is/is/verkefni/soknaraaetlun