Fara í efni

Greinagerð Sóknaráætlunar Vestfjarða 2025

Fréttir Sóknaráætlun Vestfjarða

Vestfjarðastofa og Fjórðungssamband Vestfirðinga hafa gefið út árlega greinargerð um framkvæmd Sóknaráætlunar Vestfjarða, en árið 2025 var fyrsta starfsár nýs fimm ára samnings við ríkið sem undirritaður var í lok janúar 2025. Heildarframlög ríkis og sveitarfélaga til áætlunarinnar nema um 960 milljónum króna á samningstímanum.

Í greinargerðinni kemur fram að öll átta áhersluverkefni ársins hafi komist á gott skrið. Þar má meðal annars nefna Svæðisskipulag Vestfjarða 2025–2050, sem sett var fram til kynningar á árinu og stefnt er á að ljúka vorið 2026, og sýninguna Gullkistuna Vestfirði á Torfnesi í september þar sem á níunda tug fyrirtækja og stofnana kynntu starfsemi sína. Þá var Farsældarráð Vestfjarða stofnað á Farsældarþingi í nóvember, Ungmennaráð Vestfjarða hélt ungmennaþing í Breiðuvík með 56 þátttakendum, og undirbúningur fyrir almyrkvann 12. ágúst 2026 hófst af krafti.

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða úthlutaði síðan 60 milljónum króna til 60 fjölbreyttra verkefna á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar á árinu 2025.

Á árinu 2026 verður unnið að því að samþætta Sóknaráætlunina enn frekar við Svæðisskipulag Vestfjarða þannig að stefnuskjölin tvö myndi samstæða heild til stuðnings byggðaþróun á svæðinu.

Greinargerðin í heild má HÉR eða undir síðu verkefnisins https://www.vestfirdir.is/is/verkefni/soknaraaetlun