Dagana 4.–5. júní heimsóttu fulltrúar ráðuneyta og ríkisstofnana Vestfirði til að kynna sér aðstæður og undirbúning vegna almyrkvans sem verður sýnilegur á Vestfjörðum 12. ágúst 2026.
Markmið heimsóknarinnar var að fara yfir stöðu undirbúnings á vettvangi, ræða við sveitarfélög, viðbragðsaðila og aðra hagaðila, auk þess að skoða lykilsvæði þar sem búast má við miklum fjölda gesta á meðan almyrkvinn stendur yfir.
Á meðan á heimsókninni stóð funduðu fulltrúarnir með sveitarfélögum á norðanverðum og sunnanverðum Vestfjörðum, lögreglu, slökkviliðum, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Náttúruverndarstofnun, svæðisstjórn björgunarsveita og öðrum aðilum sem koma að skipulagningu og viðbragðsáætlunum vegna viðburðarins.
Meðal þeirra sem tóku þátt í heimsókninni voru:
- Halla Tinna Arnardóttir, dómsmálaráðuneyti
- Dagný Arnarsdóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti
- Hrefna Hallgrímsdóttir, innviðaráðuneyti
- Sunna Þórðardóttir, atvinnuvegaráðuneyti
- Guðlín Steinsdóttir, heilbrigðisráðuneyti
- Viðar Helgason, fjármálaráðuneyti
- Atli Viðar Thorstensen, forsætisráðuneyti
- Runólfur Þórhallsson, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
Í heimsókninni var jafnframt farið yfir nýjustu ákvarðanir stjórnvalda varðandi undirbúning fyrir almyrkvann. Opnun upplýsingavefs um almyrkvan 12. ágúst, en hæst ber að nefna ákvörðun innviðaráðuneytisins um að ráðast í aðgerðir til að styrkja fjarskiptainnviði á Vestfjörðum vegna aukins álags sem búast má við vegna fjölda gesta sem heimsækja svæðið. Um leið hefur verið ítrekað að fjarskiptakerfi sem tengjast neyðarþjónustu og 112 verði áfram í algjörum forgangi.
Fulltrúarnir heimsóttu einnig Látrabjarg og önnur svæði þar sem búast má við mikilli umferð gesta. Á leiðinni út á Látrabjarg varð hópurinn fyrir þeirri óvæntu reynslu að dekk sprakk undir einni bifreiðinni. Þrátt fyrir það tafði atvikið ferðina aðeins um stund og gaf gestunum jafnframt smá innsýn í þann veruleika sem fylgir ferðalögum um afskekkt svæði Vestfjarða.
Upplýsingar um almyrkva á Vesfjörðum má finna í á heimasíðu Markaðsstofu Vestfjarða: Westfjords.is,