Fara í efni

Fulltrúar ráðuneyta heimsóttu Vestfirði vegna undirbúnings fyrir almyrkvann 2026

Fréttir

Dagana 4.–5. júní heimsóttu fulltrúar ráðuneyta og ríkisstofnana Vestfirði til að kynna sér aðstæður og undirbúning vegna almyrkvans sem verður sýnilegur á Vestfjörðum 12. ágúst 2026.

Markmið heimsóknarinnar var að fara yfir stöðu undirbúnings á vettvangi, ræða við sveitarfélög, viðbragðsaðila og aðra hagaðila, auk þess að skoða lykilsvæði þar sem búast má við miklum fjölda gesta á meðan almyrkvinn stendur yfir.

Á meðan á heimsókninni stóð funduðu fulltrúarnir með sveitarfélögum á norðanverðum og sunnanverðum Vestfjörðum, lögreglu, slökkviliðum, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Náttúruverndarstofnun,  svæðisstjórn björgunarsveita og öðrum aðilum sem koma að skipulagningu og viðbragðsáætlunum vegna viðburðarins.

Meðal þeirra sem tóku þátt í heimsókninni voru:

  • Halla Tinna Arnardóttir, dómsmálaráðuneyti
  • Dagný Arnarsdóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti
  • Hrefna Hallgrímsdóttir, innviðaráðuneyti
  • Sunna Þórðardóttir, atvinnuvegaráðuneyti
  • Guðlín Steinsdóttir, heilbrigðisráðuneyti
  • Viðar Helgason, fjármálaráðuneyti
  • Atli Viðar Thorstensen, forsætisráðuneyti
  • Runólfur Þórhallsson, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra

Í heimsókninni var jafnframt farið yfir nýjustu ákvarðanir stjórnvalda varðandi undirbúning fyrir almyrkvann. Opnun upplýsingavefs um almyrkvan 12. ágúst, en hæst ber að nefna ákvörðun innviðaráðuneytisins um að ráðast í aðgerðir til að styrkja fjarskiptainnviði á Vestfjörðum vegna aukins álags sem búast má við vegna fjölda gesta sem heimsækja svæðið. Um leið hefur verið ítrekað að fjarskiptakerfi sem tengjast neyðarþjónustu og 112 verði áfram í algjörum forgangi.

Fulltrúarnir heimsóttu einnig Látrabjarg og önnur svæði þar sem búast má við mikilli umferð gesta. Á leiðinni út á Látrabjarg varð hópurinn fyrir þeirri óvæntu reynslu að dekk sprakk undir einni bifreiðinni. Þrátt fyrir það tafði atvikið ferðina aðeins um stund og gaf gestunum jafnframt smá innsýn í þann veruleika sem fylgir ferðalögum um afskekkt svæði Vestfjarða.

Upplýsingar um almyrkva á Vesfjörðum má finna í á heimasíðu Markaðsstofu Vestfjarða: Westfjords.is,