Fara í efni

Fréttabréf maímánaðar er komið út

Fréttir

Stútfullt fréttabréf komið út

Fréttabréf Vestfjarðastofu fyrir maímánuð er komið út. Útgáfan teygði sig fram í júnímánuð þar sem fréttabréfið er á leið í sumarfrí og kemur ekki aftur út fyrr en í sumarlok. Að vanda er þar að finna pistil frá framkvæmdastjóra og formanni stjórnar. Síðan má lesa um fjölmörg verk Vestfjarðastofu þetta vorið, en þó veðurblíðan hafi leikið við hvern sinn fingur í maí var enginn skortur á inniverkum hjá starfsfólkinu. Við fögnum því að það sé nóg að gera og eitt af því sem við verðum áskynja í önnunum er að þær eru út um allt og mikill kraftur sem einkennir Vestfirði um þessar mundir.

Það sem er yfir og allt um kring á Vestfjarðastofu þessa dagana er útgáfa vinnutillögu Svæðisskipulags Vestfjarða sem nú er komin í skipulagsgátt og svo sýningin Gullkistan Vestfirðir sem haldin verður í íþróttahúsinu Torfnesi þann 6. september. Búið er að opna fyrir skráningar og hvetjum við öll til að vera með!

Lesa fréttabréf