Fara í efni

Súðavíkurskóli - Laus störf kennara við leik- grunn- og tónlistarskóla

Störf í boði

Súðavíkurskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með einum stjórnanda, áætlað að það verði u.þ.b. 30 nemendur, þar sem unnið er eftir Uppbyggingarstefnunni og starfið hverfist um einkunnarorðin: Vellíðan – Virðing – Framfarir – Heiðarleiki. Þá er lögð áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, vellíðan nemenda og samvinnu starfsmanna. Við grunnskólann næsta vetur verður einungis 1.-7. bekkur.

 
Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn kennsla skv. aðalnámskrám leik-grunn-og tónlistarskóla

 
Menntunar- og hæfniskröfur

Helstu hæfniskröfur eru kennsluréttindi í tónlistar-, grunn- og leikskóla og reynsla af kennslu er kostur. Hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og samviskusemi. Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í starfi. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti. Kostur er að þekkja byrjendalæsi og leiðsagnarnám

 

Sækja um starf