Fara í efni

Nora Seafood - Samfélagsmiðlar og hönnun

Störf í boði

NORA á Ísafirði leitar að skapandi einstaklingi í samfélagsmiðla og hönnun - hlutastarf.

Nora Seafood ehf leitar að öflugum og skapandi einstaklingi til að sjá um samfélagsmiðla og stafrænt efni fyrir fyrirtækið.

Við leitum að aðila hérna fyrir Vestan sem hefur mikinn áhuga á samfélagsmiðlum, skilur hvað vekur athygli á netinu og hefur gaman af því að skapa áhugavert og fallegt efni.

 

Helstu verkefni

  • Umsjón með samfélagsmiðlum Nora (Instagram og Facebook)
  • Hugmyndavinna og gerð efnis fyrir samfélagsmiðla
  • Ljósmyndun og myndbandsgerð
  • Klipping og vinnsla myndefnis fyrir samfélagsmiðla
  • Hönnun á einföldu markaðs- og kynningarefni
  • Þátttaka í að þróa sýnileika og vörumerki Nora á netinu
  • Möguleiki á að þróa TikTok sem nýjan miðil fyrir fyrirtækið

Hæfniskröfur

  • Góð íslenskukunnátta, bæði í tali og rituðu máli
  • Mikill áhugi á samfélagsmiðlum og stafrænu markaðsefni
  • Þekking á mynd- og myndbandsvinnslu
  • Reynsla af forritum eins og Adobe Creative Suite (Photoshop, Illustrator, Premiere Pro), Canva, CapCut eða sambærilegum lausnum er kostur
  • Menntun í grafískri hönnun eða skyldum greinum er mikill kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skapandi hugsun

Starfshlutfall

Um er að ræða hlutastarf sem getur hentað mjög vel með námi eða annarri vinnu. Starfshlutfall og fyrirkomulag verður ákveðið í samráði við réttan aðila.

Umsóknir

Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn ásamt ferilskrá og dæmum um fyrri verkefni eða samfélagsmiðlavinnu á agnes@noraseafood.com

Við hlökkum til að heyra frá þér!

Sækja um starf