Laust er til umsóknar 100% starf leikskólastjóra í leikskólanum Laufási á Þingeyri. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs, frá 16. nóvember 2026 til 15. nóvember 2027. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs.
Í dag eru 11 börn í leikskólanum Laufási en dægradvöl er einnig staðsett í leikskólanum og í henni eru um þessar mundir 10 börn sem koma úr grunnskólanum og yfir í leikskólann eftir hádegi. Tekin var upp heilsustefna í leikskólanum árið 2007 og fékk Laufás formlega viðurkenningu sem heilsuleikskóli þann 29. september árið 2008.
Á Þingeyri er íþróttahús, sundlaug, golfvöllur, reiðskemma og lítil verslun og þar einkennist umhverfið af mikilli náttúrufegurð. Stutt er í alla þjónustu og er Ísafjörður í um 50 km fjarlægð.
Starfssvið:
- Að veita leikskólanum faglega forystu á sviði uppeldis og kennslu
- Að leiða samstarf starfsmanna, heimila og leikskólans
- Að stýra leikskólanum og bera ábyrgð á daglegri starfsemi, fagstarfi, starfsmannamálum, fjárhagsáætlunum og rekstri
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf leikskólakennara
- Kennslureynsla á leikskólastigi
- Viðbótarmenntun í stjórnun kostur
- Þekking á rekstri
- Lipurð og færni í samskiptum
- Faglegur metnaður og hugmyndaauðgi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar
- Góð íslenskukunnátta
- Hæfni til að miðla upplýsingum bæði í mæltu máli og rituðu
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2026. Með umsókn skal fylgja ferilskrá, þar sem finna má greinargott yfirlit um nám og störf, kynningarbréf þar sem gert er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið og leyfisbréf leikskólakennara.
Umsóknir skulu sendar til Baldurs Inga Jónassonar, mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar á netfangið baldurjo@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Gunnarsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs í síma 450-8000 eða í gegnum hafdisgu@isafjordur.is.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-