Fara í efni

Kerecis - Sérfræðingur í reglugerðarmálum

Störf í boði

Sérfræðingur í reglugerðarmálum er mikilvægur hluti af vöruþróunarsviði og styður við vöxt Kerecis. Sérfræðingurinn vinnur að nýskráningum. Starfið felur í sér skrif á tækniskjölum, ráðgjöf í tengslum við þróunarverkefni og samantekt skráningargagna fyrir nýjar vörur.

 

Hefur þú roð við okkur?

Kerecis er það fyrirtæki sem vex hraðast í heiminum á sviði meðferðar á vefjaskaða og byggir tækni sína á hagnýtingu á roði og fitusýrum. Lækningavörur Kerecis eru notaðar til meðhöndlunar á margskonar líkamsskaða; m.a. á skurðsárum, þrálátum sárum, og brunasárum til að flýta fyrir gróanda og að styrkja vef eftir skurðaðgerðir og slys.

Kerecis er hluti af Coloplast samsteypunni og starfsmenn Kerecis starfa hjá fyrirtækinu á Ísafirði, í Reykjavík, Evrópu og Bandaríkjunum.

Vörur Kerecis eiga þátt í bata þúsunda einstaklinga um allan heim árlega.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúa og senda inn skráningarumsóknir lækningavara til yfirvalda á alþjóðlegum mörkuðum
  • Skrifa tækniskjöl
  • Halda utan um staðla
  • Sjá um eða aðstoða við gerð klínísks mats (CER)
  • Taka þátt í þróunarverkefnum
  • Eiga samvinnu við sérfræðinga

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólagráða á viðeigandi vísindasviði, t.d. í verkfræði, heilbrigðisvísindum eða klínískum fræðum
  • Þekking á reglugerðum lækningatækja
  • Reynsla af skráningarvinnu lækningavara er kostur
  • Góð samskiptahæfni
  • Góð enskukunnátta í ræðu og riti

 

Ef þú hefur brennandi áhuga á vinnu tengdri lækningavörum sem gera gæfumun í heilbrigðisgeiranum, bjóðum við þér að sækja um stöðu Regulatory Affairs (RA) Sérfræðings hjá Kerecis. Taktu þátt í verkefni okkar um að afhenda hágæða lækningavöru sem bæta afkomu sjúklinga.

Sækja um starf