Fara í efni

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða — Sjúkraliði á Sjúkradeild - sumarafleysing

Störf í boði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða sjúkraliða í 70-100% starf í sumar.

Hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa rúmlega 270 manns og veitir stofnunin almenna heilbrigðisþjónustu á þremur sviðum; hjúkrunarsviði, heilsugæslusviði og sjúkrasviði, með sjúkrahús á Ísafirði og Patreksfirði.

Í teyminu er lögð rík áhersla á góða samvinnu, góðan starfsanda og að virðing sé borin fyrir samstarfsfólki og skjólstæðingum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða almenn störf sjúkraliða á sjúkradeild. Hér er gott tækifæri fyrir reynslumikinn sjúkraliða sem langar að breyta um umhverfi og eyða sumrinu í faðmi fjalla á Ísafirði. Þetta er einnig kjörin staða fyrir þá sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu.

Á deildinni starfar öflugur hópur og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun.

Ísafjarðarbær er paradís útivistarfólks og skiptir þá litlu í hvaða byggðarkjarna eða sveit fólk kemur sér fyrir. Óvíða ef nokkurs staðar er jafn stutt að fara úr iðandi mannlífi yfir í ósnortna náttúru og möguleikar til útivistar eru óteljandi, hvort sem er að sumri eða vetri. Aðstoð við öflun húsnæðis er í boði.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum meðmælenda.Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.02.2024

Nánari upplýsingar veitir

Þórunn Pálsdóttir, thorunn@hvest.is

Sími: 4504500

Sækja um