Fara í efni

Arnarlax - Fullt starf í viðhaldsdeild í laxavinnslu Arnarlax á Bíldudal

Störf í boði

Arnarlax leitar eftir líflegum og drífandi einstaklingi í fjölbreytt starf vélstjóra/viðhaldsmanns í viðhaldsdeild í laxavinnslu fyrirtækisins á Bíldudal.

Starfið felur í sér umsjón, almennt viðhald og eftirlit með vélbúnaði ásamt öðrum verkefnum í samráði við yfirvélstjóra.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sjá um viðhald og eftirlit með vélbúnaði í laxavinnslu fyrirtækisins

  • Annast almenna tæknivinnu og tryggja örugga og skilvirka notkun búnaðar

  • Umsjón með vinnslubúnaði

  • Taka þátt í hönnun, uppsetningu og framkvæmdum tengdum nýjum búnaði og endurbótum

  • Þátttaka í lagerstjórnun, þar á meðal utanumhald varahluta og tækja

  • Breytilegur vinnutími

 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af viðhaldi vélbúnaðar eða viðeigandi iðnmenntun

  • Þekking á TIG-suðu er kostur

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Góð samskiptahæfni og samstarfsvilji

  • Snyrtimennska í starfi

  • Rík ábyrgðarkennd og áreiðanleiki

  • Vandvirkur einstaklingur sem gætir að eigin heilsu og öryggi

 

Sækja um starf