Starfsmenn í sjódeild
Arctic Fish óskar eftir að ràða fleiri starfsmenn í sjódeild fyrirtækisins í Patreksfirði, Tálknafirði, Arnarfirði, Dýrafirði og Ísafjarðardjúpi.
Í sjódeild fyrirtækisins er unnið á vöktum sjö daga samfellt frá 7-19 á virkum dögum og frá 7-17 um helgar.
Við erum bæði að leita að fólki með skip- og vélstjórnarmenntun og almennum starfsmönnum.
Aðalverkefni og ábyrgð:
Dagleg starfsemi á sjókvíum
Fóðrun og eftirlit með eldisfiski
Eftirlit og viðhald á tæknilegum búnaði og aðstöðu
Gerð framleiðslu- og heilsufars skýrslna
Við leitum að einstaklingum með eftirfarandi hæfni:
Duglegum, samviskusömum og áræðinlegum starfsmönnum.
Áhugi á fiskeldi
Kostur að hafa Skip- og vélstjórnarréttindi ekki skilyrði
Reynsla í fiskeldi er kostur
Ökuréttindi er kostur
Hæfni til að vinna í teymi
Það sem við bjóðum:
Góð laun Í sjóeldi fyrirtækisins er greitt 15% sjókvíaálag á dagvinnutaxta.
Spennandi vinnuumhverfi í ört vaxandi atvinnugrein
Stuðningur til náms og tækifæri til að þróast
Styrkir til íþróttaiðkunar
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
Umsóknir skulu innihalda ferilskrá (CV) og stutt kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 18. Maí 2026.