16. febrúar 2026
Störf í boði
Vilt þú starfa með okkur í sumar?
Þjónustuskrifstofa VÍS á Ísafirði leitar að hressu og metnaðarfullu starfsfólki með brennandi áhuga á þjónustu í sumarstarf með möguleika á áframhaldandi starfi.
Í starfinu færðu tækifæri til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni sem snúa fyrst og fremst að þjónustu og ráðgjöf við viðskiptavini.
Við leggjum áherslu á fagmennsku, jákvætt viðmót og lausnamiðaða hugsun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð samskiptahæfni
- Framúrskarandi þjónustulund, ástríða og metnaður fyrir því að veita úrvals þjónustu
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Metnaður í því að gera sífellt betur og vinna að umbótum
- Menntun sem nýtist í starfi