Fara í efni

Vinnueftirlitið

Störf í boði

Vilt þú vera hluti af öflugri liðsheild sem stuðlar að vinnuvernd og öryggi?

Vinnueftirlitið leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi með mikla þekkingu og áhuga á vinnuvélum og tækjum til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga á vinnuverndarsviði.

Viðkomandi mun koma til með að sinna vinnuvéla og lyftuskoðunum ásamt því að veita leiðbeiningar á sviði vinnuverndar og vinna að sérverkefnum. Gleði, lausnarmiðað hugarfar og léttleiki eru eiginleikar sem við leitum að.

Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfstöð á Ísafirði. Skoðunarsvæðið nær yfir alla Vestfirði, frá Gilsfirði að vestan til Hrútafjarðar að austan. Viðkomandi er mikið á ferðinni og í einhverjum tilfellum getur verið um lengri ferðalög að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd eftirlits með skoðunarskyldum vinnuvélum og tækjum (lyftarar, jarðvinnuvélar, kranar, húsalyftur, vinnulyftur, katlar og aðrar tilfallandi vinnuvélar og tæki).

Í því felst meðal annars skýrslugerð vegna eftirlits og eftirfylgni með fyrirmælum sem sett eru fram.

· Þátttaka í umbótastarfi og þróun eftirlits með vinnuvélum, húsalyftum og tækjum sem stofnunin sinnir.

· Leiðbeiningar til atvinnurekenda og starfsfólks um góða vinnuvernd með áherslu á forvarnir og heilbrigða vinnustaðamenningu.

· Sinnir verklegum og skriflegum prófum á vinnuvélar og tæki.

· Önnur tilfallandi verkefni.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

· Menntun sem nýtist í starfi, svo sem vélvirkjun, rafvirkjun, bifvélavirkjun, vélfræði eða sambærilegt.

· Sérhæfð reynsla sem nýtist í starfi, svo sem vinna við stjórnun og viðgerðir vinnuvéla.

· Sérhæfð þekking sem nýtist við skoðanir og eftirlit.

· Góð íslenskukunnátta skilyrði.

· Góð enskukunnátta skilyrði.

· Rík þjónustulund.

· Frumkvæði og framsýni.

· Mikil hæfni í samskiptum.

· Reynsla af vinnuverndar- og öryggisstörfum er kostur.

 

Vinnueftirlitið hefur þróast í takt við örar breytingar á vinnumarkaði og leggur sig fram við að skapa góðan vinnustað með heilbrigða vinnustaðamenningu. Markmiðið er að stuðla að bættri vellíðan, heilsu og öryggi starfsfólks þannig að öll komi heil heim. Laun eru samkvæmt kjarasamningum opinbers starfsfólks og er markmið Vinnueftirlitsins að greiða laun eins og best gerist hjá ríkinu. Við bjóðum fjölskylduvænt starfsumhverfi og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi.

Umsókn skal fylgja ferilskrá með upplýsingum um umsagnaraðila ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstudd hæfni viðkomandi sem nýtast mun í starfinu.

Umsóknarfrestur er til og með 21.maí næstkomandi.

Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út og öllum umsóknum verður svarað.

Vinsamlegast sækið um á alfred.is. Við hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Heimir Guðmundsson, sviðsstjóri sviðs vinnuverndar heimir.gudmundsson@ver.is og Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir, sviðsstjóri fólks, upplýsinga og þróunar (bergrun.sigurjonsdottir@ver.is)

Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á vefsíðu hennar www.vinnueftirlitid.is