Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða samþykkti á fundi þann 26. maí s.l. efni vinnslutillögu Svæðisskipulags Vestfjarða 2026-2050. Vinnslutillagan byggir á lýsingu svæðisskipulagsins sem mótuð var á síðasta ári í samráði við sveitarfélög og íbúa á Vestfjörðum og birt var í árslok með þeirri framtíðarmynd að íbúum á Vestfjörðum fjölgi og verði að lágmarki 11.000 manns árið 2050.
Með vinnslutillögu er svæðisskipulagsnefndin að leggja fram tillögu um hvernig endanleg svæðisskipulagstillaga geti litið út á næsta ári, varðandi framtíðarsýn og sameiginlega stefnu sveitarfélaga á Vestfjörðum til ársins 2050. Í henni birtist umfjöllun um fimm málefnasvið; náttúru og auðlindir, grunnkerfi, samfélagsauð, atvinnu og nýsköpun og menningarauð. Fjallað er um hvernig mæta má þeim áskorunum sem samfélög á Vestfjörðum þurfa að takast á við næsta aldarfjórðung, svo ná megi takmarki um fjölgun íbúa sem byggir á öflugu atvinnulífi og samfélagi.
Á samfélagssviðinu eru helstu áskoranirnar húsnæði, aldurssamsetning, inngilding nýrra íbúa, lýðheilsa og sjálfsmynd. Í atvinnumálunum varða áskoranirnar samkeppnisstöðu atvinnulífs og nýsköpunarumhverfi. Í umhverfismálum varða þær loftlagsbreytingar og að finna jafnvægi milli nýtingar og verndar og í innviðamálum eru það öflugar samgöngur, orkumál og fjarskipti og efling samstarfs sveitarfélaga á Vestfjörðum.
Tillagan verður opin til umsagnar hér í Skipulagsgátt til 20. ágúst n.k. og þar er einnig að finna stöðumatsskýrslu vinnslutillögu.