Fara í efni

Viltu verða betri í að búa til samfélagsmiðlaefni, myndbönd, fréttir eða hvers kyns filmaðar sögur?

Fréttir

Vestfjarðastofa vill vekja athygli á vinnusmiðju um gerð samfélagsmiðlaefnis, myndbanda, frétta og hvers annars filmaðs efnis. 

Vinnusmiðjan er í tveimur hlutum og fer fram á netinu

Þátttakendur hafa aðgang að stuðningshópi á Whatsapp í 30 daga eftir að námskeiði lýkur. Á þeim tíma er lögð áhersla á að þátttakendur búi til myndbönd og fái endurgjöf á þau.

Verð: 45.000,- á mann (hægt að sækja um stuðning verkalýðsfélaga)

Skráningar: gis@glimrandi.is

–  Í fyrri hluta vinnusmiðjunnar er kennt á UPPTÖKUFORRITIÐ FilmicPro
Skoðað er hvernig auka má myndgæði með þar til gerðu appi, farið yfir grundvallaratriði í tökutækni, lýsingu, stöðugleika, hljóði og flokkun efnis.

–  Í seinni hluta vinnusmiðjunnar sem fer fram viku síðar er kennt á KLIPPIFORRITIÐ KineMaster
Þetta er á klippiforrit sem hentar símanum. Sýnt hvernig tímalína er búin til, grundvallaratriði í klippingu kennd, hljóðvinna, grafík og textun.  

Námskeiðið er haldið:

Mánudag 17.5.      Kennsla á FilmicPro appið

Þriðjudagur 25.5.   Klippikennsla á Kinemaster

UM KENNARANA:

Jane Mote leiðir námskeiðið. Hún hefur unnið m.a. fyrir BBC Worldwide, Discovery International, Turner Broadcast og STV. Undanfarin ár hefur hún snúið sér að því að þjálfa fólk í efnisframleiðslu ásamt því að vera ráðgjafi hjá The Whickers sjóðnum sem styrkir heimildamyndagerð og sitja í dómnefnd fyrir BAFTA verðlaunin.

Joshua Kershaw er kvikmyndagerðarmaður með mikla reynslu af störfum í tónlistargeiranum. Hann hefur gott auga fyrir skapandi nálgun í tökum og mikla reynslu af að klippa líka. Josh hefur gert YouTube myndbönd fyrir vörumerki á borð við Toyota, Pokemon, Showtime og LG sem hafa náð mikilli útbreiðslu.

Connor Whitfield er reynslumikill klippari. Hann hefur góðan skilning á öllum hliðum efnisgerðar hafandi unnið bæði við upptökur og klipp. Connor hefur sérstakan áhuga á “greenscreen”, 3D og sci-fi drama.

Gísli Þór Guðmundsson og Anna Hildur Hildibrandsdóttir halda utan um vinnusmiðjurnar. Þau hafa bæði fjölbreytta reynslu af fjölmiðla og menningarframleiðslustörfum.