Fara í efni

Vesturbyggð - Skólastjóri grunnskóla

Störf í boði

Vesturbyggð auglýsir eftir skólastjóra grunnskóla Vesturbyggðar. Í Vesturbyggð eru reknir þrír grunnskólar, Patreksskóli, Tálknafjarðarskóli og Bíldudalsskóli. Samkvæmt nýju skipulagi verður heildarstjórn grunnskólanna sameinuð undir einn skólastjóra, en dagleg stjórnun verður áfram í hverjum skóla. Jafnframt verður lögð rík áhersla á öflugt stjórnendateymi og aukið samstarf milli skóla.

Skólastjóri grunnskóla Vesturbyggðar ber ábyrgð á faglegri forystu og samræmingu grunnskólastarfs í sveitarfélaginu. Skólastjóri leiðir samstarf skóla, styður við stjórnendur og starfsfólk og vinnur að þróun skólastarfs með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.

Skólastjóri leiðir stjórnendateymi sem skipað er stjórnendum hvers skóla, leikskólastjóra Vesturbyggðar, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og fulltrúa stoðteymis

 

Helstu verkefni

  • Leiða faglega þróun grunnskólastarfs
  • Samræma starf og samstarf milli skóla
  • Bera ábyrgð á rekstri og fjárhagsáætlun grunnskóla
  • Leiða stjórnendateymi skóla Vesturbyggðar
  • Styðja og leiða stjórnendur skóla í daglegu starfi
  • Vinna að stefnumótun og þróun skólastarfs
  • Eiga samstarf við foreldra, fræðsluyfirvöld og nærsamfélag

 

Hæfniskröfur

  • Leyfisbréf kennara
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
  • Reynsla af skólastarfi
  • Stjórnunar- og rekstrarreynsla
  • Hæfni til að leiða þróunar- og umbótastarf
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Skipulagshæfni og frumkvæði
  • Góð íslenskukunnátta

Einstök náttúrufegurð prýðir sunnanverða Vestfirði og þar er ótal margt að sjá og upplifa. Í Vesturbyggð er öflugt atvinnulíf, fjölbreytt þjónusta og gott mannlíf. Góð þjónusta er í sveitarfélaginu, öflugt æskulýðsstarf, leikskólar, íþróttasvæði, verslanir, sjúkrahús, verkstæði, vélsmiðjur, trésmíðaverkstæði, bíó, ferðaþjónusta og fl. Möguleikar til útivistar, félagsstarfa, íþrótta og afþreyingar eru fjölmargar. Vesturbyggð tekur vel á móti nýjum íbúum!

Upplýsingar veitir

Geirlaug Jóhannsdóttir – geirlaug@hagvangur.is

Sækja um starf