Fara í efni

Vestfjarðastofa - Verkefnisstjóri á Tálknafirði

Störf í boði

Vestfjarðastofa, með stuðningi Byggðastofnunar, auglýsir eftir verkefnisstjóra á Tálknafirði. Verkefnisstjóri gegnir hlutverki leiðtoga verkefnisins Brothættra byggða á Tálknafirði og vinnur að eflingu byggðar og mannlífs á Tálknafirði.

Verkefnið er til fimm ára og er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Vestfjarðastofu og Vesturbyggðar.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Tálknafirði.

 

 Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar
  • Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu
  • Ráðgjöf og aðstoð við gerð styrkumsókna og viðskiptaáætlana
  • Skýrslugerð og upplýsingamiðlun til íbúa og samstarfsaðila
  • Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í sveitarfélaginu
  • Önnur verkefni samkvæmt samkomulagi
 

 Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í verkefninu. Háskólamenntun áskilin.
  • Reynsla af verkefnastjórn æskileg
  • Þekking, skilningur og reynsla af atvinnu- og byggðamálum mikilvæg
  • Þekking á styrkjaumhverfi og skrifum umsókna í innlenda og erlenda sjóði mikilvæg
  • Frumkvæði, jákvæðni, samstarfsfærni og sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvægir eiginleikar.
  • Góð íslenskukunnátta
 

 

Fríðindi í starfi

Sveiganlegur vinnutími

 

Sækja um starf