Íris Björg Guðbjartsdóttir í Strandabyggð, Íris Ösp Heiðrúnardóttir á Ísafirði, Sunnefa Elfarsdóttir á Þingeyri og Jóhanna Ösp Einarsdóttir í Gufudal í Gufudalssveit eru meðal prjónaranna í nýrri markaðsherferð Íslandsstofu. Þær taka þátt í þjónustu þar sem íslenskir prjónarar sækja fjarfundi og prjóna fundarnótu úr íslenskri ull.
Herferðin gengur undir nafninu AI Knittakers (Authentic Icelandic Knittakers) og beinir sjónum að sítengdri fundamenningu nútímans og auknum kröfum um afköst á tímum gervigreindar. Ísland býður fram prjónara sem leysa einstaklinga af á fjarfundum svo það geti nýtt tímann í eitthvað annað, til dæmis komið til Íslands.
Hér má sjá myndband sem kynnir herferðina og hér má sjá myndbandið frá Vestfjörðum þar sem Íris Ösp prjónar við Dynjanda.
„Hugmyndin að baki herferðinni er bæði frumleg og eftirminnileg,“ segir Vilborg Pétursdóttir hjá Markaðsstofu Vestfjarða.. „Á tímum þar sem gervigreind og tæknilausnir eiga sífellt stærra hlutverk í daglegu lífi er skemmtilegt að sjá herferð sem dregur fram mannlega þáttinn, sköpunargleði og handverk. Um leið fangar hún eitthvað sem margir ferðamenn leita að þegar þeir koma til Vestfjarða; tækifæri til að hægja á sér, njóta augnabliksins og vera aðeins meira til staðar.“
Um er að ræða alvöru þjónustu, en alls taka nærri 30 prjónarar úr öllum landshlutum þátt í verkefninu. Prjónararnir sitja fundi, lesa salinn og taka eftir gildishlöðnum þögnum, viðbrögðum og ágreiningi. Afurðin er eitt prjónað orð sem endurspeglar inntak fundarins. Markmið herferðarinnar er að kynna Ísland sem vellíðunaráfangastað þar sem fólk getur notið heitra lauga, náttúru og upplifunar sem endurnærir.
„Samkeppnin um ferðamenn hefur aldrei verið harðari og fleira keppir um athygli fólks en nokkru sinni. Þess vegna þarf markaðssetning Íslands að vekja athygli. Við vitum hvað fólkið sem við tölum við vantar: tíma, hvíld, náttúru og fólk sem hlustar,“ segir Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðssamskipta hjá Íslandsstofu.
Þjónustan er ókeypis fyrir ferðamenn á lykilmörkuðum gegnum AIKnittaker.com frá 29. október til 20. nóvember. Herferðin er hluti af markaðsverkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar sem Íslandsstofa rekur fyrir hönd íslenskrar ferðaþjónustu í samstarfi við stjórnvöld, Samtök ferðaþjónustunnar og markaðsstofur landshlutanna.

Vestfirska prjónagengið
Fjórar vestfirskar prjónamaskínur taka sem áður segir þátt í verkefninu. Íris Björg lærði að prjóna í grunnskóla og hefur prjónað frá barnsaldri. Hún hefur sérstakt dálæti á því að byrja á nýju verkefni og setur sér því að klára eitt áður en hún byrjar á öðru. „Svo er dásamlegt að sitja í góðum stól, með gott ljós og prjóna undir lestri góðrar hljóðbókar,“ segir Íris Björg. Hún mælir með góðum Vestfjarðahring og heimsókn í Sauðfjársetrið, þar sem hægt sé að njóta veitinga í anda íslensks kaffitíma.
Íris Ösp lærði hjá ömmu sinni og segir áhugann hafa aukist þegar hún hætti að reyna að fara alltaf eftir reglunum. Það besta við prjónaskapinn sé að geta farið eigin leiðir.Meðal þess sem hún mælir með fyrir gesti Vestfjarða er að kanna náttúrulaugarnar, njóta fjölbreyttrar náttúru svæðisins og enda daginn á kvöldverði á Tjöruhúsinu á Ísafirði.
Sunnefa Elfarsdóttir lærði að prjóna í skóla en fann ástríðu fyrir prjónaskap á fullorðinsárum. Hún hefur sérstakan áhuga á tengingu handverksins við sögu kvenna og mælir með heitum potti eftir góða gönguferð um Vestfirði.
Jóhanna Ösp Einarsdóttir lærði að prjóna átta ára gömul og segir prjónaskapinn í dag vera skapandi og róandi mótvægi við sífellda skjánotkun.Hún hvetur gesti til að kanna Vestfirði, fara í gönguferðir, slaka á í náttúrulaugum og njóta töfra miðnætursólarinnar yfir sumarmánuðina.
