Fara í efni

Vestfirðir kynntir á Asíumarkaði – hluti af markvissri sókn í vetrarferðaþjónustu

Fréttir

Í byrjun febrúar tók Markaðsstofa Vestfjarða þátt í vinnustofum Kuoni Tumlare í Taípei, Osaka og Tókýó, þar sem Norðurlönd og Eystrasaltsríki kynntu áfangastaði sína fyrir kaupendum frá Japan, Tævan og Suður-Kóreu. Heimsóknin er hluti af vetrarverkefni Markaðsstofunnar, sem miðar að því að styrkja Vestfirði sem áfangastað allt árið um kring.

Vinnustofurnar byrjuðu af krafti í Taípei 2. febrúar. Kaupendur frá Tævan sýndu mikinn og sýnilegan áhuga á Íslandi, raðir mynduðust við borð íslensku fulltrúanna og beðið var eftir upplýsingum um ferðir um landið. Áhersla Vestfjarða í samtölum var á hópaferðir og seríur, sérstaklega yfir vetrartímann þegar áhugi Asíumarkaða er hvað mestur ekki síst í kringum kínverska nýárið. Norðurljósin eru þar lykilþáttur og eitt helsta aðdráttarafl Íslands í augum kaupenda.
Fundirnir í Japan, í Osaka 4. febrúar og Tókýó 5. febrúar, voru fjölbreyttir og markvissir. Allir sem rætt var við höfðu einhverja þekkingu á Íslandi og margir þeirra höfðu þegar reynslu af því að selja ferðir þangað. Fyrir suma voru Vestfirðir nýtt svæði í vöruframboði, á meðan aðrir þekktu vel til og höfðu fylgst með þróun ferðaþjónustu á svæðinu.

Samtölin sýndu að áhugi á Íslandi er mikill og að kaupendur leita nú í auknum mæli að nýjum svæðum og sérhæfðari upplifunum til að bæta við núverandi framboð sitt. Vestfirðir falla vel að þeirri þróun, enda svæði sem býður upp á sterka náttúruupplifun, minni hópa og möguleika á skipulagðri vetrarstarfsemi. Slík viðbrögð staðfesta að svæðið er orðið raunhæfur kostur í áframhaldandi uppbyggingu hópaferða og sería á Asíumarkaði.

Vinnustofurnar voru eingöngu ætlaðar söluaðilum frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum. Kaupendur komu frá Japan, Tævan og Suður-Kóreu og voru margir þeirra að leita að sérhæfðum, vel skipulögðum vörum fyrir hópa. Áherslan á vetrarferðir fellur vel að þeirri stefnu Vestfjarða að dreifa álagi og byggja upp verðmætari ferðaþjónustu utan sumartímans. Þetta er þó ekki skammtímaverkefni heldur maraþonhlaup þar sem traust, regluleg samskipti og eftirfylgni skipta sköpum.

Í tengslum við heimsóknina var einnig fundað í íslenska sendiráðinu í Tókýó. Þar var rætt við Haruki Tsuji, viðskiptafulltrúa sendiráðsins, um ferðaþjónustu og möguleg tækifæri á japanska markaðnum. Samtalið leiddi einnig inn á aðrar útflutningsgreinar, þar á meðal sjávarútveg og laxeldi. Haruki lýsti yfir vilja til áframhaldandi samskipta og bauð fram aðstoð sendiráðsins við að koma upplýsingum á framfæri ef fyrirspurnir berast.

Fundurinn gaf einnig tilefni til léttari samtals. Haruki sagði frá nýlegu útvarpsviðtali um Ísland í japönsku útvarpi þar sem hann var spurður hvers vegna Ísland héti Ísland. Hann hafði ekki haft svarið við höndina þá, en fékk í kjölfarið að heyra söguna um Hrafna-Flóka og hvernig nafnið á rætur til Vestfjarða. Slík augnablik minna á að markaðsstarf byggist ekki aðeins á tölum og stefnumótun, heldur líka á sögum og menningu.

Þrátt fyrir landfræðilega fjarlægð eiga Ísland og Japan ýmislegt sameiginlegt. Bæði eru eyríki, byggja afkomu sína að stórum hluta á hafinu og deila sterkri baðmenningu í heitum laugum. Þessi sameiginlegi grunnur auðveldar samtal og skilning, jafnvel þótt samfélögin séu að mörgu leyti ólík.

Heimsóknin til Tævan og Japan staðfestir að ákvörðun um að sækja markvisst á Asíumarkað með vetrarvörur Vestfjarða er rétt skref. Áhugi er til staðar, þekking er vaxandi og tækifærin raunveruleg. Næsta skref er eftirfylgni, kynningarferð og áframhaldandi samtal við kaupendur.

Það er ekki sjálfgefið að litlir landshlutar nái eyrum kaupenda hinum megin á hnettinum. En með skipulögðu starfi, skýrum skilaboðum og þolinmæði er unnt að byggja upp nýja markaði. Sókn Vestfjarða á Asíumarkað er ekki spretthlaup hún er hluti af langtímasýn um öflugri og sjálfbærari ferðaþjónustu allt árið um kring.
Fulltrúar Íslands á vinnustofunum voru Sölvi Rúnar Guðmundsson fyrir hönd Markaðsstofu Vestfjarða / Visit Westfjords, Bryndís Fiona Ford frá Markaðsstofu Austurlands / Visit East og Þóra Matthildur Þórðardóttir frá Arctic Adventures.