Fara í efni

Vestfirðingar tóku þátt í alþjóðlegu leiðtoganámi í samfélagslegri nýsköpun

Fréttir MERSE

Tveir fulltrúar frá Vestfjörðum, þær Anna Björg Þórarinsdóttir frá Galdrasýningunni á Ströndum og Heiðrún Björk Jóhannsdóttir frá Netagerðinni á Ísafirði, tóku nýverið þátt í alþjóðlegu leiðtogaþjálfunarverkefni (Leadership Training Programme) á vegum MERSE verkefnisins.

Anna Björg og Heiðrún hafa í eitt og hálft ár tekið þátt í svokölluðu jafningjanámi (peer-to-peer learning), þar sem þátttakendur læra hver af öðrum og deila reynslu úr ólíkum samfélögum.

Í upphafi verkefnisins komu þátttakendur aftur saman í Galway á Írlandi og nú hittist hópurinn þar á ný þar sem farið var yfir hvaða lærdóm mætti draga af verkefninu. Jafnframt var unnið í sameiginlegum áskorunum og dýpkuð þekking þeirra sem leiðbeinendur fyrir samfélagsverkefni í heimabyggð. Skýrt kom fram að þrátt fyrir ólíkar aðstæður standa dreifð samfélög víða frammi fyrir svipuðum áskorunum og tækifærum.

Á námskeiðinu var unnið með hvernig best er að styðja samfélagsverkefni og frumkvöðla. Meðal þess sem þátttakendur tóku með sér var mikilvægi þess að halda fókus á tilgang verkefna, nýta styrkleika samfélaga og byggja á því sem þegar virkar vel. Einnig var lögð áhersla á að góð handleiðsla byggi á trausti, skýrum mörkum og skilningi á mismunandi leiðum sem fólk nemur.

Þátttakendur unnu jafnframt með eigin reynslu og verkefni að heiman, sem gerði námið hagnýtt og beintengt þeirra starfi í heimabyggð.

Hluti af dagskránni var vettvangsferð á eyjuna Inis Mór, eina Aran-eyja, þar sem þátttakendur kynntust samfélagsdrifnum lausnum í litlu og afmörkuðu samfélagi. Þar heimsóttu þau meðal annars samvinnufélög sem sinna grunnþjónustu, orkuskiptum og endurvinnslu.

Ferðin sýndi hvernig samfélagsfyrirtæki geta gegnt lykilhlutverki í að halda uppi þjónustu og lífsgæðum á svæðum þar sem hefðbundin kerfi ná síður til. Lausnirnar byggja oft á samvinnu, nýsköpun og sterkri staðbundinni þekkingu.

Meðal þess sem vakti athygli var hvernig íbúar vinna saman að orkuskiptum, nýta sameiginlegar lausnir til að lækka kostnað og byggja upp sjálfbærni, auk þess að þróa skapandi leiðir til að takast á við úrgang og árstíðabundinn fjölda ferðamanna.

Fimm lönd taka þátt í MERSE sem styrkt er af NPA-áætlun Evrópusambandsins, auk Íslands eru það Írland, Svíþjóð, Finnland og Noregur. Markmið MERSE er að þróa viðskiptamódel og stuðningskerfi til að auðvelda stofnun og þróun samfélagsdrifins reksturs í dreifðum byggðum.