Fara í efni

Vel heppnað íbúaþing á Drangsnesi

Fréttir

Húsnæðismál, í víðum skilningi, bætt ásýnd og aukin nýting heita vatnsins, eru mikilvægustu viðfangsefni samfélagsins í Kaldrananeshreppi, til að styrkja stöðu byggðarlagsins til framtíðar. Þannig forgangsröðuðu þátttakendur málefnum á íbúaþingi sem haldið var á Drangsnesi dagana 4. og 5. október, í tilefni þess að þar hefst nú verkefni Byggðastofnunar undir hatti Brothættra byggða. Vel var mætt á þingið og tóku um 40 manns þátt í því.

Heiti verkefnisins, „Jú víst! Kraftur í Kaldrana“, sem valið var á þinginu, endurspeglar þann kraft sem leystist úr læðingi þessa daga, með virkri þátttöku og hugmyndaauðgi íbúa á ólíkum aldri úr þorpi og sveit.

Brýnt er að auka framboð á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði ásamt rými fyrir sköpun og skrifstofuaðstöðu. Mikill áhugi er á að koma á fót samfélagsaðstöðu fyrir félagsstarf, þar með talið fyrir ungt fólk. Hesthús voru líka mörgum ofarlega í huga.

Bæta mætti ásýnd m.a. með átaki í viðhaldi húsa, listaverkum og góðum leiksvæðum og gjarnan auka skjólbeltaræktun.

Kallað var eftir hitaveituvæðingu víðar í sveitarfélaginu og nefndar hugmyndir um sólarorkuver og sjálfbærni. Áhugi er á að bæta aðstöðu við pottana í fjöruborðinu, sem eru orðnir eitt af kennileitum Drangsness.

Íbúar sjá ýmis tækifæri í ferðaþjónustu og þar m.a. horft til heilsutengdrar ferðaþjónustu sem einnig myndi koma íbúum til góða. Jafnframt er áhugi á að sækja fram í sjávarútvegi og matvælaframleiðslu. Þá var rætt um hvernig mætti efla þekkingu landeigenda um fjölbreytta möguleika til nýtingar á landi og öðrum auðlindum.

Í ríkulegri sögu svæðisins felast verðmæti og fjölmargar hugmyndir um leiðir til að miðla henni, voru ræddar á þinginu.

Huga þarf að ýmsum samgöngubótum og m.a. bæta vetrarþjónustu og merkingar.

Efling samfélagsins, tengsl og inngilding voru þátttakendum ofarlega í huga, til að tengja saman íbúa af öllum þjóðernum, rótgróna jafnt sem aðflutta, þ.m.t. sumarhúsaeigendur.

Fyrir þingið var unnið með börnum í grunnskólanum og aðspurð um hvað er gott við að búa í Kaldrananeshreppi, nefndu þau m.a. náttúru, dýralíf og frelsi og að allir séu vinir. En þau eiga sér m.a. óskir um betri leikaðstöðu og „meira stuð fyrir krakka, fyrir utan skólalóðina“, hærra þjónustustig í verslun og „fleiri hús fyrir fleira fólk“.

Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá ILDI stýrði íbúaþinginu og verða skilaboðin sem þar komi fram nýtt við gerð verkefnisáætlunar sem gildir til allt að fimm ára.

Að verkefninu standa, auk Byggðastofnunar, Fjórðungssamband Vestfirðinga / Vestfjarðastofa og Kaldrananeshreppur, ásamt íbúum.

Verkefnisstjóri, Valgeir Jens Guðmundsson, hefur tekið til starfa og er hann starfsmaður Vestfjarðastofu, búsettur á Drangsnesi.