Fara í efni

Vegagerðin - Sumarstörf - þjónustustöðvar á Vestursvæði

Störf í boði

Ert þú að leita að fjölbreyttu og spennandi starfi þar sem þú færð að njóta útiveru? Við erum að leita að kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi til að ganga til liðs við okkur.
Opið er fyrir umsóknir um sumarstörf á starfsstöðvum Vestursvæðis.
Starfsstöðvar eru staðsettar í Patreksfirði, Ísafirði og Hólmavík.
Vinsamlegast takið fram í umsókn undir athugasemdum á hvaða starfsstöð sótt er um.

 
Helstu verkefni og ábyrgð

Þjónustustöðvar.
Vinnuhópar eru starfræktir á þjónustustöðvum Vegagerðarinnar yfir sumartímann og sinna þeir almennu viðhaldi vegsvæða.

  • Vinna við umferðarmerki, vegvísa, stikur, málningarvinna
  • Holuviðgerðir, ristahlið, hreinsun vegsvæðis
  • Tiltekt og viðhald í áhaldahúsi og lóð
  • Önnur tilfallandi störf er upp kunna að koma hverju sinni

Vélaverkstæði Borgarnesi og Ísafirði
Vélaverkstæði sinnir almennu viðhaldi og lagfæringum

  • Viðhald og lagfæringar á vinnuvélum, tækjum og bifreiðum
  • Viðhald og lagfæringar á vegbúnaði
  • Önnur tilfallandi störf er upp kunna að koma hverju sinni
 

Sækja um starf