Hvernig byggir samfélagsrekstur í dreifbýli upp sjálfbær og árangursrík viðskiptamódel? Í vefstofu MERSE þann 26. mars verður sjónum beint að lykilatriðum í þróun og rekstri slíkra fyrirtækja, með áherslu á áskoranir og tækifæri sem felast í starfsemi utan stærri þéttbýlissvæða.
Vefstofan hefst á fræðilegu yfirliti þar sem farið verður yfir helstu nálganir og hugtök sem tengjast viðskiptamódelum samfélagsfyrirtækja. Fyrirlesarar eru Yvonne von Friedrichs og Cecilia Dalborg hjá Midsweden University, sem hafa sérhæft sig í rannsóknum á þessu sviði.
Því næst verða kynnt raunveruleg dæmi úr starfsemi samfélagsreksturs. Fulltrúar frá Jobloop sem starfar bæði í Noregi og Svíþjóð, þau Johanna Axelsson og Oddbjörn Sve, segja frá sinni reynslu. Einnig mun Hildur Dagbjört Arnardóttir kynna starfsemi Gróanda - félagslandbúnaðar, sem er íslenskt dæmi um samfélagsdrifið frumkvæði á þessu sviði.
Að lokum verður sjónum beint að stuðningsumhverfi samfélagsfyrirtækja. Þar mun Arnar Sigurðsson frá East of Moon fjalla um sína reynslu, auk þess sem Jarmo Hänninen frá YYO, The Center for Expertise of Social Entrepreneurship, í Finnlandi kynnir starfsemi og stuðningsleiðir fyrir samfélagsdrifin fyrirtæki.
Vefstofan fer fram í gegnum Zoom og hefst kl.9:30 að íslenskum tíma. Hún er á vegum MERSE sem er alþjóðlegt samstarfsverkefni á vegum NPA áætlunar Evrópusambandsins og er opin öllum sem hafa áhuga á samfélagslegri nýsköpun, atvinnuþróun í dreifbýli og uppbyggingu sjálfbærra rekstrarlíkana.
Skráning fer fram hér
