Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og María Rut Beck komu í heimsókn til Vestfjarðastofu á dögunum þar sem farið var yfir helstu verkefni stofunnar, stöðu Vestfjarða og þau tækifæri og áskoranir sem blasa við landshlutanum.
Á fundinum var farið um víðan völl og rætt um fjölbreytt málefni sem tengjast innviðum, ferðaþjónustu, atvinnulífi, alþjóðamálum og framtíðarsýn Vestfjarða.
Meðal þess sem kom til umræðu var Svæðisskipulag Vestfjarða 2025–2050, sem hefur verið samþykkt af sveitarfélögunum á Vestfjörðum og er mikilvægur leiðarvísir fyrir uppbyggingu og þróun landshlutans til framtíðar.
Einnig var fjallað um skýrslu um varnarinnviði á Vestfjörðum, þar sem horft er til þess hvernig innviðauppbygging á Vestfjörðum getur styrkt áfallaþol Íslands og fallið að aukinni áherslu á borgaralega innviði í öryggis- og varnarmálum.
Ferðaþjónustan fékk jafnframt talsvert rými í umræðunni. Rætt var um stöðu greinarinnar á Vestfjörðum, markaðssetningu landshlutans, hlutverk áfangastaðastofu, Flugþróunarsjóð og mikilvægi hvatakerfa til að styðja við betra aðgengi að landshlutanum. Þá var einnig komið inn á þjóðgarðsumræðu á Vestfjörðum, innviðagjöld og væntanlega opinbera gjaldtöku á ferðamannastöðum sem tekin verður fyrir á haustþingi.
Rætt var um óánægju með stöðu mála í ferjusiglingum Baldurs, en afbókanir og óvissa í samgöngum hafa þegar haft áhrif á fyrirtæki í ferðaþjónustu á svæðinu.
Á fundinum var einnig rætt um íslenskan eldislax og tækifæri til að styrkja stöðu hans á erlendum mörkuðum. Bent var á að íslenskur eldislax er á mörkuðum þar sem norskur eldislax hefur þegar byggt upp sterkt vörumerki, sýnileika og ímynd. Í því samhengi var rætt um tækifæri sem felast í sameiginlegu átaki til að styrkja stöðu íslensks eldislax og auka sýnileika hans á erlendum mörkuðum.
Vestfjarðastofa þakkar Þorgerði Katrínu og Maríu Rut kærlega fyrir komuna og gott samtal um stöðu og framtíð Vestfjarða.