Fara í efni

Uppsprettan, nýsköpunarsjóður á vegum Haga

Fréttir

Uppsprettan er nýr nýsköpunarsjóður á vegum Haga. Hlutverk sjóðsins er að virkja og styðja við frumkvöðla til nýsköpunar og þróunar í íslenskri matvælaframleiðslu. Sjóðurinn leggur áherslu á stuðning við framleiðendur sem taka tillit til sjálfbærni og styðja við innlenda framleiðslu.

Tíu milljónir eru til úthlutunar úr sjóðnum árið 2021 og opið verður fyrir umsóknir til 28 maí. 

Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna hér.

  • Umsóknir skulu berast eigi síðar en 28. maí 2021.
  • Umsóknina skal senda inn sem Power Point kynningu og má kynningin ekki vera lengri en 20 glærur. 
  • Senda skal umsóknir á tölvupóstfangið uppsprettan@hagar.is

Nánari upplýsingar um umsóknarformið er að finna á heimasíðu Uppsrettunnar.