Í dag 27. ágúst kl 16.00, koma saman við minnismerki Kollabúðafunda í Þorskafirði fulltrúar allra sveitarfélaga á Vestfjörðum ásamt fulltrúa HMS til að staðfesta með undirritun sinni, samþykkt nýs svæðsskipulags fyrir Vestfirði, Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050.
Val á þessari staðsetningu, vísar til, að hér fer fram staðfesting á framtíðarstefnu vestfirskra sveitarfélaga og sögu staðarins sem sameiginlegs vettvangs Vestfirðinga.
Kollabúðafundir voru haldnir um miðja nítjándu öld og var stofnað til þeirra með hvatningu Jóns Sigðurssonar, þingmanns Ísafjarðarsýslna, í anda nýrra sjónarmiða um aukin völd til íslenskra þjóðar að ráða sínum málum, en einnig fundir til að fjalla um málefni Vestfirðinga og Breiðfirðinga. Á Kollabúðum var einnig haldin Þorskafjarðarþing á þjóðveldistíma og öldum þar á eftir.
Staðsetning undirritunar Svæðisskipulags Vestfjarða sem sameiginlegs stefnuskjals vestfirskra sveitarfélaga til næstu 25 ára er því með sterkar sögulegar rætur. Með svæðisskipulaginu hafa sveitarfélögin náð saman um framtíðarsýn og sett markmið til að að framþróun samfélaga, atvinnulífs og umhverfis á Vestjörðum. Framkvæmd skipulagsins verður í höndum sveitarfélaganna í gegnum aðalskipulagsgerð og Sóknaráætlun Vestfjarða auk fleiri áætlana. En skipulagið veitir einnig áætlunum stjórnvalda leiðsögn hver sé stefna sveitarfélaganna á Vestfjörðum.
Vinna að gerð svæðisskipulagsins hófst í haustið 2023 og lauk með samþykkt sveitarstjórna og HMS í maí og júní s.l.. Stjórnun á gerð skipulagsins var á vegum Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða með aðild starfsmanna Vestfjarðastofu. Skipulagsráðgjöf var í höndum VSÓ ráðgjafar og Urbana ehf.
