Fara í efni

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Fréttir

Matvælasjóður auglýsir eftir umsóknum. Þetta er í þriðja sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun og er heildarúthlutunarfé sjóðsins 593 milljónir króna. 

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.

Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. Ráðstöfunarfé Matvælasjóðs samanstendur af fjárveitingu af fjárlögum hverju sinni og öðrum tekjum eftir því sem þeim er til að dreifa.

Allar upplýsingar um sjóðinn má finna á heimsíðu sjóðins-  HÉR

Hægt er að senda inn fyrirspurnir á netfangið matvaelasjodur@mar.is. Fyrirspurnin skal merkt í efnislínu með þeim flokki sem hún varðar (Bára, Kelda, Afurð eða Fjársjóður). Ef fyrirspurnin er almenns eðlis skal merkja hana "Almennt" í efnislínu.

Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl. Sækja má um í sjóðinn með því að smella hér:

UMSÓKNARKERFI MATVÆLASJÓÐS

 

 

Skoða á viðburðardagatali