03. nóvember 2026
Fréttir
Umsagnir
Október er að venju annasamur við gerð umsagna frá Alþingi eftir að þingið kom að nýju saman í september s.l. og eins drög frumvarpa og þingsályktana á þingmálaskrá ríkisstjórnar sem setta hafa verið í Samráðsgátt stjórnvalda.
Alls voru unnar sex umsagnir að hálfu Fjórðungssambandsins og Vestfjarðastofu.
- Frumvarp um breytingar á ákvæðum laga er varða skatta og gjöld á árinu 2027, rætt um áhrif hækkunar kílómetragjalds á ökutæki og innviðagjalds á skemmtiferðaskip, lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna húsbygginga og síðan hugleiðingar um gjaldtöku tengt nýtingu náttúruauðlinda tengt ferðaþjónustu og lagareldi og ólíka nálgun gagnvart landsbyggð og höfuðborgarsvæði.
- Frumvarp til fjárlaga 2027, áréttað að nægt fjármagn verði tryggt til að vinna að framkvæmdum samkvæmt nýrri samgönguáætlun, viðhald vega og efling vetrarþjónustu og til uppbyggingar farnets á stofn og tengivegum. Mótmælt lækkunum á fjármagni til sóknaráætlana, markaðsmála ferðþjónustu og atvinnuþróunar og lækkunum á tímabundnum framlögum til verkefnisins um farsæld barna.
- Þingsályktun um farsæld barna er fagnað og stutt við markmið stefnunnar en áréttað að við framkvæmd stefnunnar verði með skýrari hætti tekið mið af ólíkum aðstæðum í smærri og dreifðari byggðum. Búseta, vegalengdir og takmarkaðar samgöngur mega ekki ráða því hvort börn geti nýtt þjónustu sem þau eiga rétt á og tekið þátt í samfélaginu.
- Drög að frumvarpi um náttúru og innviðagjald. Lögð áhersla á að samhliða innleiðingu náttúru- og innviðagjalds verði tryggð skýr heildarsýn um nýtingu aukinna tekna vegna ferðaþjónustu. Þar verði ekki eingöngu horft til þeirra staða þar sem gjald er innheimt eða til markaðssetningar landsins í heild, heldur einnig til svæðisbundinnar áfangastaðaþróunar og framkvæmdar áfangastaðaáætlana um land allt.
- Drög að frumvarpi um stórþörungarækt. Fagnað því að málið sé komið fram en um margra ára skeið hefur málið tafist og tafið þar með uppbyggingu nýrrar atvinnugreinar. Ábendingar settar fram varðandi aðkomu sveitarfélaga m.t.t. netlaga en ræktunin mun skarasta við þau lögsögumörk og hafa margvísleg áhrif á rekstur hafna, en í greinargerð frumvarpsins eru þau áhrif talin lítil en reynsla af sjókvíaeldi segir hið gagnstæða. Áréttað er í því sambandi með sérstöðu Reykhólhrepps þar sem nýting og vinnsla þörunga hefur verið lykilatvinnuvegur í meira en hálfa öld.
Allar umsagnirnar vísa til samstöðu vestfirskra sveitarfélaga á framtíðarsýn og markmið landshlutans sem kemur fram í nýju Svæðisskipulagi Vestfjarða. Umsagnirnar í heild sinni má síðan finna á heimasíðu Vestfjarðastofu