08. júní 2026
Störf í boði
Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum vantar að ráða fólk til löndunar á þangi. Starfið felur í sér að vinna á bryggju og í lest á skipi við löndun á þangpokum, þar sem þarf að húkka í, hreinsa og pakka þangpokum sem verið er að landa. Þangið er síðan þurrkað og malað í verksmiðju félagsins.
Löndun fer öllu jafna fram á dagvinnutíma og er bæði unnið á vinnuvélum og á bryggju.
Öryggiskröfur eru strangar og þarf nýr starfsmaður að tileinka sér góða öryggisvitund og taka þátt í því öryggisstarfi sem fer fram í Þörungaverksmiðjunni.
Verksmiðjan gengur allan sólahringinn flesta daga ársins. Afurðir eru úrvals mjöl úr þangi og þara sem selt er út um allan heim.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast sendið tölvupóst á info@thorverk.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna á bryggju og lest
- Hrista netapoka
- Pakka netapokum
- Þrif og frágangur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Öryggisvitund
- 20 ára eða eldri
- Vinnuvélaréttindi eru kostur
- Geta unnið vel í hóp
- Góð heilsa
Fríðindi í starfi
- Verksmiðjan getur útvegað húsnæði