Auglýst er eftir sumarstarfsmönnum við hin ýmsu störf hjá Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar (áhaldahúsi). Starfstímabil er 11. maí til 14. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi og er vinnutími milli kl. 07.30 – 16.25 virka daga, nema til hádegis á föstudögum. Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2026.
Helstu verkefni eru: Almenn störf, s.s. uppsetning umferðarskilta, holuviðgerðir, hellulögn og margt fleira.
Hæfniskröfur: Leitað er eftir starfsfólki 18 ára og eldri sem hafa áhuga á útivinnu. Viðkomandi þarf að vera stundvís, sveigjanleg(ur) og hafa jákvætt viðhorf til vinnunnar. Æskilegt er að viðkomandi hafi bílpróf.
Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við VerkVest/Kjöl.
Umsóknum skal skilað til Páls Brynjars Pálssonar, forstöðumanns Þjónustumiðstöðvar Ísafjarðarbæjar í tölvupósti á verkstjori@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Nánari upplýsingar um starfið veitir Páll Brynjar í gegnum fyrrgreindan tölvupóst eða síma 892-1634.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-