Fara í efni

Tálknafjörður, nýtt þátttökubyggðarlag í Brothættum byggðum

Fréttir

Tálknafjörður hefur hafið þátttöku í byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir. Stjórn Byggðastofnunar samþykkti á fundi sínum þann 26. febrúar sl. að bjóða Tálknafirði til samstarfs í verkefninu. Skrifað var undir þríhliða samning um verkefnið á milli Byggðastofnunar, Vesturbyggðar og Vestfjarðastofu í mars síðastliðnum.

Næstu skref

Auglýst hefur verið eftir verkefnisstjóra til að leiða verkefnið á Tálknafirði, umsóknarfrestur um starfið er til 6. maí. Það er Vestfjarðastofa sem annast ráðningarferlið og verður starfsmaðurinn jafnframt starfsmaður hennar. Eitt af fyrstu skrefum verkefnisins að öðru leyti verður að skipa verkefnisstjórn sem mun taka ákvarðanir um framkvæmd verkefnisins þ.m.t. undirbúning íbúaþings. Íbúaþingið er talið marka upphaf þátttöku íbúa í verkefninu. Í kjölfar íbúaþings munu nýr verkefnisstjóri og verkefnisstjórn móta verkefnisáætlun fyrir verkefnið. Á næstu vikum verður lögð fyrir viðhorfakönnun meðal íbúa með spurningum um samfélagið á Tálknafirði og viðhorf til verkefnisins Brothættra byggða.

Sautjánda byggðarlagið í Brothættum byggðum

Byggðarlagið er það sautjánda í röðinni sem hefur þátttöku í Brothættum byggðum frá því að verkefnið hóf fyrst göngu sína á Raufarhöfn árið 2012. Gert er ráð fyrir að verkefnistíminn muni að óbreyttu vara í fimm ár þ.e. til loka maí árið 2031.


Verkefnið Brothættar byggðir er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi.