Fulltrúar allra sveitarfélaga á Vestfjörðum og Húsnæðis, mannvirkja,- og skipulagsstofnunar (HMS) komu saman við minnismerki Kollabúðafunda í Þorskafirði miðvikudaginn 27. ágúst og undirrituðu nýtt Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050. Með undirrituninni var staðfest sameiginleg framtíðarsýn sveitarfélaganna fyrir þróun samfélaga, atvinnulífs og umhverfis á Vestfjörðum næstu 25 árin.
Val á staðsetningu undirritunarinnar var ekki tilviljun. Kollabúðir gegna sérstökum sessi í sögu Vestfirðinga sem sameiginlegur vettvangur samráðs og ákvarðanatöku. Þar voru haldnir svokallaðir Kollabúðafundir á árunum 1849 til 1868 að frumkvæði Jóns Sigurðssonar, þá þingmanns Ísafjarðarsýslna, í anda aukinnar sjálfsstjórnar Íslendinga. Á staðnum voru einnig haldin Þorskafjarðarþing á þjóðveldisöld og um aldir þar á eftir.

Við undirritunarborðið sátu (frá vinstri) Hermann Jónsson, forstjóri HMS, Elísabet Margrét Jónsdóttir sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, Gylfi Ólafsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Kristinn Gauti Einarsson staðgengill bæjarstjóra Bolungarvíkurkaupstaðar, Gerður Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar, Kjartan Þór Ragnarsson sveitarstjóri Reykhólahrepps, Dagrún Fanný Liljarsdóttir sveitarstjóri Strandabyggðar og Sigrún Sverrisdóttir oddviti Árneshrepps.
Viðburðurinn var vel sóttur af fulltrúum allra sveitarfélaganna, auk starfsfólks Vestfjarðastofu, og naut sín í einmuna góðu veðri. Ávörp fluttu Aðalsteinn Óskarsson, sviðsstjóri byggðaþróunar hjá Vestfjarðastofu og starfsmaður Svæðisskipulagsnefndar, Lilja Magnúsdóttir fráfarandi formaður Svæðisskipulagsnefndar 2023-2026, Guðrún Lára Sveinsdóttir teymisstjóri skipulags hjá HMS og Gylfi Ólafsson, formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga.

Vinna við gerð svæðisskipulagsins hófst haustið 2023 og lauk með samþykkt sveitarstjórna og HMS í maí og júní 2025. Verkefnið var unnið á vegum Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða með þátttöku starfsfólks Vestfjarðastofu. Skipulagsráðgjöf var í höndum VSÓ Ráðgjafar og Urbana ehf.
Með svæðisskipulaginu hafa sveitarfélög Vestfjarða náð samkomulagi um sameiginleg markmið og stefnu sem ætlað er að styðja við sjálfbæra þróun svæðisins. Framkvæmd skipulagsins verður meðal annars í höndum sveitarfélaganna í gegnum aðalskipulagsgerð, Sóknaráætlun Vestfjarða og aðrar áætlanir sem móta uppbyggingu og framtíð svæðisins. Jafnframt mun skipulagið veita stjórnvöldum mikilvæga leiðsögn um áherslur og framtíðarsýn Vestfirðinga.