Fara í efni

Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050, tillaga samþykkt

Fréttir Svæðisskipulag Vestfjarða

Á 26. fundi Svæðisskipulagsnefndar þann 4. maí 2026, samþykkti nefndin að senda sveitar-/ og bæjarstjórnum á Vestfjörðum beiðni um afgreiðslu tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050.

Þetta er hluti af lokaáfanga að verkefninu sem hófst í september 2023 á grundvelli samþykktar 67. Fjórðungsþings Vestfirðinga haustið 2022. Þegar samþykki sveitar/ og bæjarstjórna liggur fyrir verður beiðni um staðfestingu send á Húsnæðis, mannvirkja og skipulagsstofnun.

Upplýsingar og gögn verkefnisins er hér á heimasíðu https://www.vestfirdir.is/is/verkefni/fv/svaedisskipulag