Laus eru til umsóknar störf sundlaugarvarða í sundlauginni á Flateyri og á Suðureyri. Um er að ræða störf í tímavinnu á opnunartíma á föstudögum, þ.e. frá kl. 13:30 til 19:00. Æskilegast að viðkomandi geti hafið störf 8. janúar 2027. Næsti yfirmaður er forstöðumaður íþróttamannvirkja.
Helstu verkefni:
- Baðvarsla
- Sundlaugarvarsla
- Þrif
- Afgreiðsla
- Eftirlit með búnaði
- Þjónusta við viðskiptavini
Hæfnikröfur:
- Rík þjónustulund
- Góð samskiptafærni og sveigjanleiki
- Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Gott líkamlegt ástand
- Vera orðinn 20 ára
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).
Umsóknarfrestur er til og með 7. desember. Umsóknum skal skilað til Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa á netfangið dagnyf@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Nánari upplýsingar veitir Dagný í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-