Fara í efni

Súðavíkurskóli - Skólastjóri

Störf í boði

Súðavíkurskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með einum stjórnanda, áætlað að það verði u.þ.b. 30 nemendur, þar sem unnið er eftir Uppbyggingarstefnunni og starfið hverfist um einkunnarorðin: Vellíðan – Virðing – Framfarir – Heiðarleiki. Þá er lögð áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, vellíðan nemenda og samvinnu starfsmanna. Við grunnskólann næsta vetur verður einungis 1.-7. bekkur.

Við Súðavíkurskóla er laus staða skólastjóra til umsóknar.

Hæfniskröfur eru:

Kennsluréttindi og stjórnun.

Gerð er krafa um hæfni í mannlegum samskiptum, samviskusemi, jákvæðni og góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti.

Við Súðavíkurskóla eru einnig lausar stöður kennara við leik- og grunnskóla og jafnframt 50% staða í tónlistardeildina. Í grunnskólanum fer fram samkennsla árganga í öllum námsgreinum. Helstu hæfniskröfur eru kennsluréttindi í tónlistar-, grunn- og leikskóla og reynsla af kennslu er kostur. Hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og samviskusemi. Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í starfi. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti. Kostur er að þekkja byrjendalæsi og leiðsagnarnám.
Súðavíkurhreppur greiðir laun eftir kjarasamningi SÍ, KÍ og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Umsókn skal skilað til Önnu Lindar Ragnarsdóttur skólastjóra, á netfangið annalind@sudavikurskoli.is og með umsókn skal fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og
leyfisbréfi.

Umsóknarfrestur er til 22. apríl 2026.

Allar nánari upplýsingar veitir Anna Lind Ragnarsdóttir skólastjóri í síma 450 5911 og gsm 893 4985 eða í gegnum netfangið annalind@sudavikurskoli.is