Fara í efni

Súðavíkurskóli - Laus staða skólastjóra

Störf í boði

Súðavíkurskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með einum stjórnanda, áætlað að það verði u.þ.b. 30 nemendur, þar sem unnið er eftir Uppbyggingarstefnunni og starfið hverfist um einkunnarorðin: Vellíðan – Virðing – Framfarir – Heiðarleiki. Þá er lögð áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, vellíðan nemenda og samvinnu starfsmanna. Við grunnskólann næsta vetur verður einungis 1.-7. bekkur.

Umsókn skal skilað til Önnu Lindar Ragnarsdóttur skólastjóra, á netfangið annalind@sudavikurskoli.is og með umsókn skal fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til 19. júní 2026.
Allar nánari upplýsingar veitir Anna Lind Ragnarsdóttir skólastjóri í síma 450 5911 og gsm 893 4985 eða í gegnum netfangið annalind@sudavikurskoli.is og eða sudavik@sudavik.is

 
Helstu verkefni og ábyrgð

Stjórnun leik-grunn- og tónlistarskóla skv. aðalnámskrám þessa skólagerða

 
Menntunar- og hæfniskröfur

Helstu hæfniskröfur eru kennsluréttindi í tónlistar-, grunn- og leikskóla og reynsla af kennslu er kostur. Hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og samviskusemi. Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í starfi. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti. Kostur er að þekkja byrjendalæsi og leiðsagnarnám.

 

Sækja um starf