Súðavíkurhreppur óskar eftir að ráða öflugan og framsýnan leiðtoga í starf sveitarstjóra. Sveitarstjóri gegnir lykilhlutverki í þróun og uppbyggingu sveitarfélagsins og ber ábyrgð á daglegum rekstri þess í samstarfi við sveitarstjórn, starfsfólk og íbúa. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem reynir á leiðtogahæfni, frumkvæði og góða samskiptafærni.
Starfssvið sveitarstjóra:
- Ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
- Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins
- Daglegur rekstur sveitarfélagsins og starfsmannamál
- Undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar og nefnda
- Hagsmunagæsla og samskipti við íbúa, stofnanir, samtök og fyrirtæki
- Leiða uppbyggingu og eflingu atvinnulífs á svæðinu
- Vinna að stefnu og framtíðarsýn í málefnum sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og fjármálum
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
- Reynsla af störfum á sveitarstjórnarstigi er æskileg
- Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Leiðtogahæfni, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Áhugi og reynsla á uppbyggingu og eflingu atvinnulífs
- Geta til að tjá sig í ræðu og riti
Um Súðavíkurhrepp:
Í Súðavíkurhreppi búa rúmlega 200 íbúar og er sveitarfélagið staðsett við sunnanvert Ísafjarðardjúp á norðanverðum Vestfjörðum og er því stærsti þéttbýliskjarninn. Atvinnulíf sveitarfélagsins byggir á sterkum stoðum sjávarútvegs, fiskeldis, ferðaþjónustu og fjölbreyttrar þjónustustarfsemi.
Súðavík er öflugt og samheldið samfélag þar sem lögð er áhersla á fjölskylduvænt umhverfi, gott skólastarf og fjölbreytt tækifæri til útivistar. Náttúra Vestfjarða er allt um kring og lífsgæðin einstök.
Framundan eru spennandi tímar í atvinnuuppbyggingu sveitarfélagsins. Á hafsæknu iðnaðarsvæði við höfnina er hafin uppbygging kalkþörungaverksmiðju sem markar upphaf nýs vaxtarskeiðs í verðmætasköpun og nýsköpun á svæðinu. Samhliða þeirri uppbyggingu liggja fyrir veruleg tækifæri til frekari atvinnuþróunar, fjárfestinga og nýrrar starfsemi á iðnaðarsvæðinu.
Súðavíkurhreppur stendur því á tímamótum þar sem metnaðarfull framtíðarsýn, öflug innviðauppbygging og ný atvinnusókn skapa einstakt tækifæri fyrir sveitarstjóra til að leiða sveitarfélagið inn í nýjan kafla vaxtar og þróunar.
Frekari upplýsingar um sveitarfélagið má finna á www.sudavik.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og með henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.