Fara í efni

Súðavíkurhreppur - Matráður óskast við Súðavíkurskóla

Störf í boði

Súðavíkurhreppur auglýsir starf matráðs við Súðavíkurskóla.

Leitað er að ábyrgum, jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi til að sjá um daglegan rekstur mötuneytis leik- og grunnskólans.

Í mötuneytinu er að jafnaði eldað fyrir um 40 einstaklinga á dag bæði leik- og grunnskólabörn og starfsfólk. Fjöldi matargesta getur verið breytilegur.

Við leggjum áherslu á hollan, fjölbreyttan og næringarríkan heimilismat þar sem góð hráefni og vönduð matargerð eru í fyrirrúmi.

Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Um er að ræða 75% starfshlutfall.

Starfið er laust frá og með 1. nóv 2026. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 28. okt.2026.

Umsóknir berist á netfangið sudavik@sudavik.is

 

Helstu verkefni:

  • Matreiðsla og framreiðsla máltíða fyrir börn og starfsfólk.
  • Skipulagning matseðla og máltíða með áherslu á hollustu og fjölbreytni.
  • Innkaup og utanumhald hráefna og birgða.
  • Uppvask, frágangur og þrif eldhúss og mötuneytissalar.
  • Ábyrgð á hreinlæti og öruggri meðhöndlun matvæla.
  • Að gæta að sérþörfum barna vegna fæðuofnæmis og óþols.
  • Önnur tilfallandi verkefni í starfsemi skólans eftir þörfum

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af matreiðslu er æskileg.
  • Áhugi á hollri næringu og matargerð fyrir börn.
  • Sjálfstæð, skipulögð og ábyrg vinnubrögð.
  • Rík hreinlætisvitund og snyrtimennska.
  • Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni.
  • Íslenskukunnátta er kostur
  • Rík áhersla er lögð á matvælaöryggi og vönduð vinnubrögð. Viðkomandi þarf að hafa lokið eða vera tilbúinn að ljúka viðeigandi fræðslu í matvælaöryggi og hreinlæti við upphaf starfs.

Við bjóðum:

  • Sjálfstætt og fjölbreytt starf ásamt notalegu starfsumhverfi í litlu skólasamfélagi.
  • Fræðsla og námskeið í matvælaöryggi á kostnað sveitarfélagsins.