Súðavíkur hreppur óskar eftir að ráða manneskju til að gegna starfi umsjónarmanns fasteigna hjá Súðavíkurhreppi. Í starfinu felst umsjón fasteigna, umsjón með áhaldahúsi og fasteignum sveitarfélagsins, hafnarvarsla og vigtun sjávarafla og umsjón með sorpsvæði á opnunartíma og jafnframt umsjón með veitum sveitarfélagsins og vinnuskóla Súðavíkurhrepps. Starfið er laust frá og með 1.maí 2026, en æskilegt er að viðkomandi geti komið til starfa og aðlögun starfs frá og með 1.apríl 2026.
Starfslýsing
Í starfi umsjónarmanns fasteigna felst eftirlit með fasteignum, létt viðhald fasteigina og uppáfallandi þrif, innkaup á þrifa- og rekstrarvörum, hafnarvarsla auk viktunar sjávarafla við Súðavíkurhöfn, utanumhald snjómoksturs og söndunar að vetri í samráði við verktaka sem sér um snjómokstur. Jafnframt eftirlit með veitum sveitarfélagsins og götulýsingu og öllum hlutum sem teljast til fasteigna sveitarfélagsins. Yfirumsjón með vinnuskóla Súðavíkurhrepps er hluti starfsins auk yfirumsjónar með sorpmóttöku við Njarðarbraut(grenndarstöðvum og samskipti við verktaka í sorphirðu).
Hæfniskröfur og skilyrði
Súðavíkurhreppur leitar að þjónustulunduðum og traustum starfsmanni. Hluti af starfi er vigtun sjávarafla. Réttindi til vigtunar(löggildingu) er æskileg en að öðrum kosti undirgangast námskeið til vigtunar. Starfið útheimtir samskiptahæfni þar sem viðkomandi er í forsvari fyrir stofnanir og fasteignir sveitarfélagsins og gegnir samskiptum við þá aðila sem koma að rekstri, viðhaldi og nýta þjónustu sveitarfélagsins. Viðkomandi þarf að geta sinnt léttu viðhaldi og hafi bílpróf. Ekki er gerð krafa um prófgráðu eða ákveðin starfsréttindi umfram það sem upp er talið, en æskilegt að viðkomandi starfsmaður hafi yfir að ráða einhverri þekkingu á þeim sviðum sem undir starfið falla.
Vinnutími og starfshlutfall
Um 100% starfshlutfall er að ræða og tekur launasetning mið af kjarasamningum Kjalar svo og önnur kjör starfsmanns. Vinnutími getur verið nokkuð fljótandi eftir viðfangsefnum og árstíma í takt við þjónustuveitingu sveitarfélagsins en gert er ráð fyrir að jafnaði 8 stunda viðveru. Umsjónarmaður fasteigna sinnir einnig uppáfallandi verkefnum á skrifstofu Súðavíkurhrepps eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri Súðavíkurhrepps og umsókn og fyrirspurnir skal senda á bragi@suðavik.is eða hafa samband við skrifstofu í síma 456-5900.
Umsóknarfrestur er til 15.mars 2026.