Fara í efni

Stofnun og rekstur fyrirtækja í Forvitnum frumkvöðlum

Fréttir
Á morgun 3. júní fer fram næsti hádegisfyrirlestur Forvitinna frumkvöðla og þar mun Páll Baldursson taka fyrir stofnun og rekstur fyrirtækja. Farið verður yfir helstu form félaga og fyrirtækja í rekstri og þau borin saman. Skoðaðir verða helstu kostir og gallar mismunandi félagaforma, ábyrgð eiganda ofl.
Jafnframt verður farið yfir hlutverk stjórna og skoðað hvaða reglur gilda um hver megi skuldbinda félag ásamt fleiru.
 
Páll Baldursson er verkefnastjóri í byggða- og atvinnuþróun hjá Austurbrú og sinnir m.a. ráðgjöf og stuðningi við fyrirtæki og frumkvöðla.
 
Erindið verður haldið á Teams og hefst kl.12. Tekur það um 45 mínútur og í kjölfarið gefst kostur á að leggja fram spurningar. Fræðsluhádegi landshlutasamtakanna eru öllum opin og að kostnaðarlausu!
Hlekkur á fundinn.
 
Forvitnir frumkvöðlar hafa verið haldnir fyrsta þriðjudag í mánuði í vetur af landshlutasamtökunum: Austurbrú, SASS, SSNE, SSNV, SSS, SSV og Vestfjarðarstofu. Í boði hefur verið fjölbreytt fræðsla fyrir frumkvöðla og önnur áhugasöm um nýsköpunarsenuna. Forvitnir frumkvöðlar fara í sumarfrí að loknu þessu erindi, en halda áfram í haust!