Fara í efni

Stjórn Sóknarhóps Vestfjarða vill sjá frumvarp um lagareldi á haustþingi

Fréttir
Eftirfarandi er ályktun frá Stjórn Sóknarhóps Vestfjarðastofu
 
Stjórn Sóknarhóps Vestfjarða skorar á atvinnuvegaráðherra að leggja fram frumvarp um lagareldi á haustþingi 2026. Að Sóknarhópnum standa 96 fyrirtæki á öllum Vestfjörðum.
 
Lagareldi er orðið burðarás í atvinnulífi og samfélagsþróun á Vestfjörðum og hefur átt stóran þátt í þeirri viðspyrnu sem orðið hefur á svæðinu undanfarin ár. Mikið veltur því á að regluverk greinarinnar verði uppfært og sköpuð skýr og fyrirsjáanleg rekstrarskilyrði. Viðvarandi óvissa um framtíðarfyrirkomulag greinarinnar hefur dregið úr fjárfestingum síðustu misseri og tafið uppbyggingu á svæðinu.
 
Fiskeldisfyrirtækin á svæðinu hafa lýst því yfir að með skýrri framtíðarsýn muni fjárfestingar og umsvif aukast að nýju, meðal annars með uppbyggingu aðstöðu til framleiðslu stærri seiða á landi. Slíkri uppbyggingu fylgja enn fleiri fjölbreytt störf og aukin verðmætasköpun á Vestfjörðum.
 
Sóknarhópurinn hvetur atvinnuvegaráðherra eindregið til að leggja málið fram sem fyrst og tryggja því brautargengi.